Hvernig virkar Rísell?

Við höfum einfaldað allt — svo þú þurfir ekkert að hugsa um

Fyrir seljendur 🏷️

1

Pantaðu Rísell-poka

Skráðu þig sem seljandi og pantaðu poka í gegnum seljandagáttina. Við sendum hann heim til þín.

Rísell-poki kostar 3.500 kr. sem þjónustugjald vegna móttöku og umsýslu.

2

Pakkaðu fatnaðinum

Settu fatnaðinn í pokann. Gakktu úr skugga um að flíkurnar séu hreinar og í góðu ástandi.

Við tökum við fatnaði í ágætu til mjög góðu ástandi.

3

Sendu til Rísell

Sendu pokann til okkar, eða notaðu sendingarauðkenni ef þú sendir í eigin umbúðum.

Sendingarauðkenni kostar 3.000 kr. og hentar ef þú vilt nota eigin poka eða kassa.

4

Við sjáum um allt

Við sjáum um ljósmyndun, vörulýsingar og verðlagningu samkvæmt verðstefnu Rísell.

Verð lækkar mánaðarlega á meðan varan er í sölu, í allt að 6 mánuði.

5

Þú færð greitt

Þegar sala telst endanleg greiðum við þér á bankareikning fyrsta virka dag næsta mánaðar.

Þú færð 50% af söluverði, að frádregnu 100 kr. skráningargjaldi.

Þín hlutdeild: 50% af söluverði, að frádregnu 100 kr. skráningargjaldi fyrir hverja samþykkta vöru.

Uppgjör: fyrsta virka dag hvers mánaðar, þegar sala telst endanleg.

Sjá hvaða vörur við tökum við

Fyrir kaupendur 🛍️

1

Skoðaðu vörurnar

Leitaðu eftir stærð, tegund eða verðbili í vörulista okkar.

2

Settu í körfu

Veldu vörurnar sem þér líkar og settu í körfuna. Allar vörur eru eintök.

3

Greiddu með öruggum hætti

Greiðslur fara í gegnum þá greiðslumáta sem eru í boði hverju sinni, svo sem Teya.

4

Fáðu vöruna heim

Við pökkum vörunum og sendum þær til þín. Þú færð staðfestingarpóst með rakningarnúmeri.

Algengar spurningar

Hvaða hlutir eru samþykktir?▼

Við tökum við fatnaði, skóm og fylgihlutum sem eru hrein, heil og söluvæn. Sjá nánar undir móttökuskilyrðum.

Hvað ef vara seldist ekki?▼

Ef vara selst ekki innan 6 mánaða geturðu óskað eftir endursendingu gegn sendingarkostnaði. Berist engin beiðni er Rísell heimilt að ráðstafa vörunni, til dæmis til endurvinnslu eða góðgerðarmála.

Hvernig er verð ákveðið?▼

Rísell verðleggur vörur út frá ástandi, vörumerki og markaðsvirði. Verð lækkar mánaðarlega samkvæmt verðstefnu Rísell.

Hvenær fæ ég greitt?▼

Uppgjör fer fram fyrsta virka dag hvers mánaðar vegna vara sem teljast endanlega seldar við lok liðins mánaðar.

Sjá fleiri spurningar →

Tilbúin að selja?

Skráðu þig og pantaðu þinn fyrsta poka í dag

Fara í seljandagátt →