Síðast uppfært: 15. september 2026

Móttökuskilyrði

Rísell tekur við vörum sem falla að þjónustu félagsins og uppfylla kröfur um ástand, hreinleika og söluvænleika.

Almenn skilyrði

  • •Vörur skulu vera hreinar og tilbúnar til notkunar.
  • •Þær skulu vera heilar og í góðu ásigkomulagi.
  • •Þær skulu vera lausar við óeðlilega lykt, bletti, skemmdir eða slit umfram það sem eðlilegt telst.
  • •Þær skulu vera ósviknar og löglega komnar í eigu seljanda.
  • •Þær skulu falla undir þá vöruflokka sem Rísell tekur við á hverjum tíma.

Rísell áskilur sér rétt til að hafna vörum sem fyrirtækið telur óseljanlegar, óhreinar, hættulegar, ólöglegar, falsaðar eða ósamrýmanlegar þjónustunni. Nánar er fjallað um þetta í seljendaskilmálum.

Vörur sem við tökum á móti

Fatnaður

  • •Kjólar
  • •Bolir
  • •Pils
  • •Toppar
  • •Skyrtur
  • •Buxur
  • •Samfestingar
  • •Blússur
  • •Peysur
  • •Jakkar
  • •Dragtir
  • •Meðgönguföt
  • •Samfellur
  • •Stuttbuxur
  • •Yfirhafnir
  • •Jakkaföt
  • •Íþróttaföt
  • •Útiföt
  • •Náttföt
  • •Sloppar
  • •Vesti
  • •Búningar
  • •Heimagerð föt, ef upplýsingar um efni fylgja

Fylgihlutir

  • •Treflar
  • •Húfur og höfuðfatnaður
  • •Hanskar og vettlingar
  • •Sólgleraugu
  • •Belti
  • •Veski
  • •Töskur
  • •Bindi og slaufur
  • •Sjöl
  • •Skartgripir
  • •Klútar
  • •Hárskraut
  • •Úr, þó ekki snjallúr

Sérskilyrði

  • •Nærföt sem eru ónotuð og enn í pakkningu eða með verðmiða
  • •Sokkar og sokkabuxur sem eru ónotuð og enn í pakkningu eða með verðmiða
  • •Sundföt sem eru enn í pakkningu, enn með fóðri eða verðmiða
  • •Brjóstahaldarar

Vörur sem við tökum ekki á móti

  • •Ungbarnaföt
  • •Barnaföt
  • •Brúðarkjólar
  • •Notuð nærföt
  • •Notuð sundföt
  • •Sérsniðin föt, nema heimagerð
  • •Snyrtivörur
  • •Falsaðar vörur
  • •Ólöglegur varningur
  • •Snjallúr
  • •Raftæki
  • •Illa farin, illa lyktandi eða skítug föt
  • •Skaðlegar eða hættulegar vörur
  • •Aðrar vörur sem flokkast ekki sem föt eða fylgihlutir