Spurt & Svarað
Allt sem þú þarft að vita um Rísell
🏷️ Söluferli
Hvernig get ég byrjað að selja?▼
Skráðu þig sem seljandi og pantaðu Rísell-poka (3.500 kr.) eða sendingarauðkenni (3.000 kr.) í gegnum seljandagáttina. Pokinn er sendur til þín; auðkennið notaðu ef þú sendir í eigin umbúðum.
Hvaða fatnað tökum við við?▼
Við tökum við fatnaði, skóm og fylgihlutum sem eru hrein, heil og söluvæn. Nánari listi yfir vörur sem við tökum við, og tökum ekki við, er á síðunni um móttökuskilyrði.
Hvernig er verð ákveðið?▼
Rísell verðleggur samþykktar vörur út frá ástandi, vörumerki og markaðsvirði. Verð lækkar mánaðarlega samkvæmt verðstefnu Rísell á meðan varan er í sölu.
Get ég sent margar vörur í einum poka?▼
Já. Yfirleitt kemst 10–15 flíkur í einn poka, eftir stærð og gerð fatnaðarins.
Hvað ef vara seldist ekki?▼
Ef vara selst ekki innan 6 mánaða geturðu óskað eftir að fá hana senda til baka gegn sendingarkostnaði. Berist engin beiðni innan frests er Rísell heimilt að ráðstafa vörunni, til dæmis til endurvinnslu eða góðgerðarmála.
💳 Greiðslur og útgreiðslur
Hvenær fæ ég útgreiðslu?▼
Uppgjör fer fram fyrsta virka dag hvers mánaðar vegna vara sem teljast endanlega seldar við lok liðins mánaðar. Sala telst endanleg þegar varan hefur verið afhent og skila- og kvörtunarfrestur er liðinn.
Hvað er hlutdeild seljanda?▼
Þú færð 50% af söluverði hverrar endanlega seldrar vöru, að frádregnu 100 kr. skráningargjaldi fyrir hverja samþykkta vöru sem fer í sölu.
Hvernig fæ ég greitt?▼
Greiðslan er send á bankareikning sem er skráður á aðganginn þinn. Hafðu samband ef þú þarft að uppfæra bankareikningsupplýsingar.
📦 Kaup og sendingar
Hvernig greiði ég?▼
Greiðslur geta farið fram í gegnum þá greiðslumáta sem eru í boði hverju sinni, svo sem Teya, PayPal og Netgíró.
Hversu langan tíma tekur sendingin?▼
Við sendum almennt innan 3–5 virkra daga eftir að greiðsla er móttekin.
Get ég skilað vöru?▼
Ef vara er ekki í samræmi við lýsingu eða gölluð umfram það sem upplýst var um skaltu hafa samband eins fljótt og auðið er, helst innan 7 daga. Sá frestur skerðir ekki lögbundinn rétt þinn.
Hvað kostar sendingin?▼
Sendingarkostnaður kemur fram í greiðsluferlinu. Við vinnum með traustum flutningsaðilum til að tryggja örugga og hraða afhendingu.
🔒 Aðgangur og öryggi
Er öruggt að kaupa á Rísell?▼
Já. Greiðslur fara í gegnum viðurkennda greiðsluþjónustuaðila. Við geymum ekki kortaupplýsingar þínar.
Get ég haft samband ef eitthvað kemur upp?▼
Já. Hafðu samband með tölvupósti á risellisland@gmail.com eða í gegnum aðganginn þinn.
Fannt þú ekki svarið?
Sendu okkur tölvupóst á risellisland@gmail.com og við svörum eins fljótt og við getum.